Jamm og jú...jamm og jamm og jú
05. maí 2009 klukkan 19:38
Ég elska að fá öll helstu update úr alvöru cocktail-partýjum tískuheimsins!... Nánar
Note-books eða Nótubækur
04. apríl 2009 klukkan 17:18
Með hækkandi sól og prófalestri hefst blogg-season.... Nánar
Ef þér gengur ekki vel á prófi...felldu! (??) Fall er fararheill.
04. mars 2009 klukkan 09:01
Ég byrjaði á þessari færslu en átti í vandræðum með fyrirsögnina, hvernig er boðháttur sagnarinnar að falla? Er hann til? Þið fattið allavega hvað fyrirsögnin gefur í skyn.... Nánar
I'm bringing sexy back!
23. febrúar 2009 klukkan 22:01
Grillurnar komnar undan feldinum með Þorgeiri Ljósvetningagoða, hann var orðinn frekar rotinn þar greyið en góður félagsskapur þrátt fyrir allt.... Nánar
NÝR STAÐUR-NÝR TÍMI-NÝ SKRIF-NÝTT ALLT
20. febrúar 2009 klukkan 11:07
And we're back! Þar sem áskriftin okkar á grillum er að renna út (á 123.is) ætlum við að færa okkur hingað, þar sem við erum ekki virkustu bloggendur heims. Reynum samt að gera þessa síðu aðeins meira heillandi fyrir ykkur elskur.
Ást og umhyggja,
ERS og VBP
Hooooooooooooooo-da
11. mars 2007 klukkan 18:12
Jæja people...
það er loksins komið að því! Við erum fluttar og ætlum að flytja ykkur með á...
www.123.is/grillur
Endilega kíkið beyglur,
ást frá okkur grillum.
Pís Át

Changes
05. mars 2007 klukkan 23:00
Breytingar í gangi einsog ég ræddi um hér á undan...
...stay tuned!
ER bráðavaktin
Hermikráka-Krákuherma
20. febrúar 2007 klukkan 21:14
!"#$%&
Smá útrás áður en ég get byrjað. Það er nefnilega svo margt sem ég hef að segja en veit ekki hvað nær að make the cut. Hvað er nógu merkilegt til þess að koma fram á bloggsíðu grillanna? Hmmm...
Það er sko kominn tími á að gera e-ð fyrir þessa síðu, ég hef verið að hugsa það lengi hvað við getum gert og svarið var: EITTHVAÐ! Þannig eitthvað verður gert fyrir hana í nánustu framtíð, kannski við verðum duglegri við að blogga og uppfæra eitthvað annað, eins og kannski dálkinn "trendið" (á hverju var ég þegar ég kom með þetta nafn?), lag dagsins (ætti að heita lag ársins reyndar), merkilegar heimasíður og jafnvel bæta inn einhverju sniðugu. Gallinn við það er sá að það eru allir með það sama og ef maður bætir e-u hér inná, þá er maður að gera einsog e-r annar. Nenni ekki svoleiðis rugli.
Er samt með eina hugmynd sem gæti verið smá, örlítið skemmtileg en ég ætla bera það undir Valgerði sænskugellu fyrst.
Svo væri tilvalið að setja svona "Gullmolar" inn. Er til dæmis með einn í veiðifæri:
Dagurinn í dag, skólinn. Við stelpurnar að ræða þemadaga-val. Umræðurnar berast að þeim sem ætla í kínverska matargerð. Þá kemur Tinna með spurningu útúr heiðskíru lofti: Stelpur, hvað borða Kínverjar? Bara svín og svoleiðis?
"You had to be there"-móment? Tja...ég spyr... Tinna þú ert snillingur, veit ekki hvar við værum án þín elskan.
Yfir í allt önnur mál. Ég fór að hugsa um daginn á hvað ég trúi. (Vá hvað ég sé ykkur fyrir mér ekki nenna að lesa framhaldið...en gjörið svo vel, takk og bless.)
Nú er ég ekki bara að tala um trúna á Guð, Jesú Krist og hvað þeir heita allir gæjarnir á "himnum", heldur líka bara svona almennt í lífinu. Ég er örlítið hjátrúarfull og geri og geri ekki marga furðulega hluti, til dæmis ef ég er að skoða moggann og fletti óvart inn í dánartilkynningarnar (ég les bara aftasta hlutann af blaðinu), þá þarf ég að fletta öllum dánartilkynningasíðunum, veit ekki útaf hverju en það er bara eitthvað (já ég er algjört viðrini, ég veit). Útvarpið þarf alltaf að vera á sléttri tölu (volume 12 en ekki 11, ég hata oddatölur), og svo frameftir götunum.
Ég trúi á stjörnuspár, miðla, framliðið fólk og ýmsa spádóma aðra, en geimverur trúi ég ekki á (kannski ég ætti að fullkomna furðulegheitin í mér og byrja að trúa á þær líka?)
Um daginn heyrði ég skilgreiningu á guði sem mér fannst mjög merkileg. Samkvæmt henni er Guð allir æðstu kraftar heimsins sameinaðir í einn, ólýsanlega stóran kraft sem heldur öllu saman. Persónulega trúi ég ekki að e-r maður að nafni Guð hafi skapað ljós, tré, pöddur og okkur. Get engan veginn fengið það útúr öllum pælingum mínum. En hins vegar hljómar kraftaskilgreiningin vel á honum Guði. Ég geng samt alltaf með kross um hálsinn, ekki endilega til að minnast þegar Jesú var krossfestur, heldur vegna þess að það er eitthvað öryggi sem ég finn þegar ég er með hann, skrítið? Svo finnst mér krossar líka flottir.
Einn góður vinur minn sagði við mig að Guð væri ást, og að þegar þú upplifir ástina, þá ertu að upplifa Guð.
Þetta er eitthvað sem ég trúi á, vil trúa. En spáið samt í því hvað trúarbrögð eru að orsaka mörg stríð í heiminum? Bara því sumir trúa á Palla en hinir á Kalla...(Búdda, Allah?) Mér finnst þetta glatað. Nú segi ég einsog litla stelpan sagði við pabba sinn: "Pabbi, afhverju geta ekki bara allir í heiminum verið vinir"...hún hefur nokkuð til síns máls. Líka þegar fólk er að segja: "Eins og stendur í Biblíunni"..o.s.frv. Á maður að lifa eftir bók sem var skrifuð fyrir billjónum ára? Gera eitthvað eða gera eitthvað ekki, bara því það stendur svart á hvítu í margra blaðsíðna þykkri bók? Þá vil ég nú frekar lesa stjörnuspána mína á yahoo.com og lifa eftir henni....right?
Áður en þetta fer að fara út í rugl, þá ætla ég bara að leyfa ykkur að njóta vafans, um hvað sé Guð og hvað ekki, kannski er ykkur bara nákvæmlega sama...og það er líka allt í lagi. Þið eruð töff hvort sem er.
Fer að skella inn nýjum myndum og þessu sem ég lofaði ykkur í byrjun færslunnar...okei?
p.s. Heiða mín, hefurðu ekki nógu mikið af lausum tíma sem þú veist ekkert hvað þú átt að gera við? Ég veit hvað þú getur gert, ég er að spá í að skrá þig í keppni sem heitir Fyndnasti maður Íslands. Þú mundir sannfæra fólk á einni sekúndu....til? (ég skal vera umboðsmaðurinn þinn)
Rosie Waits...trúuð og ekki trúuð